Rannsóknarnefnd umferðarslysa
Road Accident Analysis Group

Forsíða | Fréttir | Lög RNU | Nefndarmenn | Skýrslur | Tenglar | Fróðleikur | Tillögur í öryggisátt |
4
látnir í umferðinni 2010 

Hér birtir RNU ýmsan fróðleik sem tengist umferðaröryggismálum

 

 

Svefn og þreyta

 

Rannsóknarnefnd umferðarslysa rannsakaði banaslys sem varð á Suðurlandsvegi við Hvammsveg í apríl 2008, en þar sofnaði ökumaður pallbíls undir stýri, með þeim afleiðingum að bifreið hans sveigði yfir á rangan vegarhelming í veg fyrir umferð sem á móti kom. Rannsóknin leiddi í ljós að hann var að ljúka við langa næturvakt og var illa sofinn. Einnig hafið ökumaðurinn verið veikur dagana á undan.  Í skýrslu nefndarinnar um málið var gerð tillaga í öryggisátt sem meðal annars var send Vinnueftirlitinu. Vinnueftirlitið brást við með útgáfu dreifibréfs sem sent var til flutningafyrirtækja og annarra fyrirtækja þar sem akstur er hluti af daglegum störfum.

Bréf Vinnueftirlitsins

Skýrsla RNU um banaslysið á Suðurlandsvegi við Hvammsveg 11.4.2008

 

Umferðaröryggisleg áhrif minni meðalþyngdar bifreiðaflota

 

Stjórnvöld hér á Íslandi sem víðar annars staðar hafa miklar áhyggjur af stöðu umhverfismála og þróun í þeim efnum. Ljóst er að grípa verður til aðgerða í þeim efnum og meðal sviða sem verið er að vinna í eru losun mengandi efna vegna umferðar ökutækja. Ávinningur þess að minnka meðalþyngd ökutækja á losun óæskilegra efna í andrúmsloftið er óumdeildur en á móti koma ýmsir þættir sem vega upp á móti fyrrnefndum ávinningi. Rannsóknarnefnd umferðarslysa vann fyrir fjármálaráðuneytið veturinn 2008 greinargerð um umferðaröryggisleg áhrif þess að minnka meðalþyngd bifreiðaflotans. Starfandi var þennan vetur starfshópur um endurskoðun á skattlagningu á ökutæki og eldsneyti með það að markmiði að stuðla að minni mengun frá umferð ökutækja. Greinargerðina má finna hér.
 

Sjúklingar og umferðaröryggi

 

Haraldur Ó. Tómasson, læknir, fjallar í erindi sínu, "Sjúklingar og umferðaröryggi" um heilsufar og ökuhæfni sjúklinga. Veltir Haraldur upp sjónarmiðum um ábyrgð lækna og tilkynningarskyldu, sem og ábyrgð sjúklinganna sjálfra. Á Íslandi eru reglur þannig að læknum  ber ekki að tilkynna yfirvöldum ef sjúklingar þeirra neyta lyfja sem skerða hæfni til aksturs. Í erindinu kemur m.a. fram að íslendingar innbirgða mest allra á Norðurlöndunum af lyfjum sem verka á miðtaugakerfið.
 
Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur rannsakað nokkur slys þar sem lyfjanotkun er stór þáttur og í kjölfarið óskað eftir umræðu um þessi mál, m.a. í bréfi til Landlæknisembættisins nýverið.  Sjónarmið nefndarinnar koma fram í skýrslu um banaslys í Vopnafirði 26.10.2006

 

 

 

Slys og mannslíkaminn

 

Á Umferðarþingi árið 2004 hélt Kristín Sigurðardóttir, þá læknir á slysa- og bráðadeild LSR, fróðlegt erindi sem ber heitið "Slys og mannslíkaminn". Rannsóknarnefnd umferðarslysa telur að þekking almennings á þeim kröftum sem verka á mannslíkamann í umferðarslysum sé af skornum skammti. Brýnt er að koma á framfæri  fræðilegri nálgun í þessu samhengi, ekki til að hræða fólk, heldur til að upplýsa og auka skilning. Það er ástæða fyrir því að nefndin og aðrir sem sinna umferðaröryggismálum fjalla ítrekað um einföld atriði eins og það að vegfarendur noti öryggisbúnað og stilli hraða í hóf. Óvarinn mannslíkaminn þolir ekki högg og barning sem oft fylgir umferðarslysum. Smellið hér til að lesa erindi Kristínar. 

 

Rannsóknarnefnd umferðarslysa Rannsóknarnefnd umferðarslysa Neyðarlínan 1-1-2 Lögreglan Samgönguráðuneytið Vegargerðin | Færð á vegum Umferðarstofa Prenta síðuna Stækka letrið Minnka letrið English